Amos 1:1–15

1  Orð Amosar,* eins af fjárhirðunum frá Tekóa,+ sem opinberuðust honum í sýn um Ísrael á dögum Ússía+ Júdakonungs og á dögum Jeróbóams+ Jóassonar+ Ísraelskonungs, tveim árum fyrir jarðskjálftann.+  Hann sagði: „Frá Síon mun Jehóva öskra eins og ljónog láta í sér heyra frá Jerúsalem. Beitilönd fjárhirðanna syrgjaog Karmeltindur skrælnar.“+   „Þetta segir Jehóva: ‚„Vegna þriggja, já, fjögurra glæpa* Damaskus dreg ég dóm minn ekki til baka. Þeir þresktu Gíleað með þreskisleðum úr járni.+   Þess vegna sendi ég eld gegn húsi Hasaels+sem gleypir virkisturna Benhadads.+   Ég brýt slagbranda Damaskus.+ Ég útrými íbúunum í Bíkat Avenog tortími þeim sem ríkir* í Bet Eden. Sýrlendingar verða fluttir í útlegð til Kír,“+ segir Jehóva.‘   Þetta segir Jehóva: ‚„Vegna þriggja, já, fjögurra glæpa Gasa+ dreg ég dóm minn ekki til baka. Þeir tóku heilan hóp af útlögum+ og framseldu þá Edómítum.   Þess vegna sendi ég eld gegn múr Gasa+sem gleypir virkisturna hennar.   Ég útrými íbúunum í Asdód+og tortími þeim sem ríkir* í Askalon.+ Ég sný hendi minni gegn Ekron+og þeir Filistear sem eftir eru munu farast,“+ segir alvaldur Drottinn Jehóva.‘   Þetta segir Jehóva: ‚Vegna þriggja, já, fjögurra glæpa Týrusar+ dreg ég dóm minn ekki til baka. Þeir framseldu Edómítum heilan hóp af útlögumog gleymdu bræðrasáttmálanum.+ 10  Þess vegna sendi ég eld gegn múr Týrusarsem gleypir virkisturna hennar.‘+ 11  Þetta segir Jehóva: ‚Vegna þriggja, já, fjögurra glæpa Edóms+ dreg ég dóm minn ekki til baka. Hann elti bróður sinn með sverði+og sýndi enga miskunn. Í heift sinni rífur hann þá vægðarlaust sundur,hann er þeim ævinlega reiður.+ 12  Þess vegna sendi ég eld gegn Teman+sem gleypir virkisturna Bosra.‘+ 13  Þetta segir Jehóva: ‚„Vegna þriggja, já, fjögurra glæpa Ammóníta+ dreg ég dóm minn ekki til baka. Þeir ristu þungaðar konur í Gíleað á kvið til að stækka landsvæði sitt.+ 14  Þess vegna legg ég eld að múr Rabba+sem gleypir virkisturna hennarþegar heróp ómar á orrustudeginum,þegar stormur geisar á óveðursdeginum. 15  Og konungur þeirra verður fluttur í útlegð ásamt höfðingjum sínum,“+ segir Jehóva.‘

Neðanmáls

Sem þýðir ‚byrði‘ eða ‚sá sem ber byrði‘.
Eða „uppreisna“.
Orðrétt „ber veldissprotann“.
Orðrétt „ber veldissprotann“.