Jesaja 54:1–17

  • Hin ófrjóa Síon eignast mörg börn (1–17)

    • Jehóva, eiginmaður Síonar (5)

    • Jehóva kennir sonum Síonar (13)

    • Vopn gegn Síon bregðast (17)

54  „Fagnaðu, þú ófrjóa kona sem hefur ekki fætt!+ Hrópaðu af gleði,+ þú sem hefur aldrei haft hríðir,+því að börn* yfirgefnu konunnar eru fleirien börn konunnar sem á eiginmann,“*+ segir Jehóva.   „Stækkaðu tjaldstæði þitt.+ Þendu út tjalddúka þinnar stórfenglegu búðar. Haltu ekki aftur af þér, lengdu stöginog styrktu tjaldhælana.+   Þú munt breiða úr þér til hægri og vinstri. Afkomendur þínir leggja undir sig þjóðirog setjast að í yfirgefnum borgunum.+   Vertu óhrædd+ því að þú þarft ekki að skammast þín,+óttastu ekki niðurlægingu því að þú verður ekki fyrir vonbrigðum. Þú gleymir skömminni sem þú máttir þola í æskuog minnist ekki framar smánar ekkjudómsins.“   „Þinn mikli skapari+ er eins og eiginmaður* þinn,+Jehóva hersveitanna er nafn hans. Hinn heilagi Ísraels er endurlausnari þinn,+hann verður kallaður Guð allrar jarðarinnar.+   Jehóva kallaði á þig eins og yfirgefna og harmi slegna eiginkonu,+eins og konu sem giftist ung en var svo hafnað,“ segir Guð þinn.   „Ég yfirgaf þig stutta stunden af mikilli miskunn tek ég þig til baka.+   Fullur reiði huldi ég andlit mitt fyrir þér eitt augnablik+en í tryggum kærleika miskunna ég þér að eilífu,“+ segir Jehóva endurlausnari þinn.+   „Fyrir mér er þetta eins og dagar Nóa.+ Ég sór að Nóaflóð kæmi aldrei aftur yfir jörðina+og eins sver ég að reiðast þér aldrei framar né ávíta þig.+ 10  Fjöllin geta færst úr staðog hæðirnar skolfiðen tryggur kærleikur minn verður ekki tekinn frá þér+og friðarsáttmáli minn mun ekki haggast,“+ segir Jehóva, sá sem miskunnar þér.+ 11  „Þú þjáða kona+ sem ert hrakin og enginn huggar,+ég legg steina þína í sterkt steinlímog geri undirstöður þínar úr safírum.+ 12  Ég geri virkisveggi þína úr rúbínum,hlið þín úr glitrandi steinum*og öll borgarmörk þín úr eðalsteinum. 13  Jehóva mun kenna öllum sonum* þínum+og þeir* munu njóta mikils friðar.+ 14  Réttlætið verður traustur grundvöllur þinn.+ Þú verður fjarri kúgun,+þú óttast ekkert og þarft ekki að skelfast neittþví að ekkert sem skelfir kemur nálægt þér.+ 15  Ef einhver ræðst á þiger það ekki að minni skipun. Hver sem ræðst á þig fellur.“+ 16  „Ég skapaði járnsmiðinnsem blæs að kolaeldinum og smíðar vopn. Ég skapaði líka eyðandann til að leggja í eyði.+ 17  Ekkert vopn sem smíðað verður gegn þér reynist sigursælt+og hver tunga sem ákærir þig fyrir rétti verður sakfelld. Þetta er arfurinn sem þjónar Jehóva fáog þeir eru réttlátir í mínum augum,“ segir Jehóva.+

Neðanmáls

Eða „húsbónda“.
Orðrétt „synir“.
Eða „húsbóndi“.
Eða „úr eldsteinum“.
Eða „börnum“.
Eða „börn þín“.