Jesaja 56:1–12
56 Þetta segir Jehóva:
„Varðveitið réttlætið og gerið það sem er rétt+því að ég mun bráðum frelsaog réttlæti mitt birtist.+
2 Sá sem gerir þetta er hamingjusamur,sá maður sem heldur sig við það,sá sem heldur hvíldardaginn og vanhelgar hann ekki+og heldur hendi sinni frá öllu illu.
3 Útlendingurinn sem tilbiður Jehóva+ á ekki að segja:
‚Jehóva aðgreinir mig örugglega frá þjóð sinni.‘
Og geldingurinn á ekki að segja: ‚Ég er visið tré.‘“
4 Jehóva segir við geldingana sem halda hvíldardaga hans,* velja það sem honum líkar og halda sig fast við sáttmála hans:
5 „Í húsi mínu og innan múra minna gef ég þeim minnismerki og nafnsem er betra en synir og dætur.
Ég gef þeim eilíft nafn,nafn sem verður ekki afmáð.
6 Útlendingana sem koma til Jehóva til að þjóna honum,þá sem elska nafn Jehóva+og eru þjónar hans,alla sem halda hvíldardaginn og vanhelga hann ekkiog halda sig fast við sáttmála minn,
7 leiði ég líka til míns heilaga fjalls+og læt þá gleðjast í bænahúsi mínu.
Ég tek við brennifórnum þeirra og sláturfórnum á altari mínuþví að hús mitt verður kallað bænahús fyrir allar þjóðir.“+
8 Alvaldur Drottinn Jehóva, sem safnar saman hinum dreifðu Ísraelsmönnum,+ segir:
„Ég safna til þeirra fleirum en þegar eru komnir.“+
9 Komið og étið, öll dýr merkurinnar,öll þið villtu dýr skógarins.+
10 Varðmennirnir eru blindir,+ enginn tekur eftir neinu.+
Þeir eru allir hljóðir hundar sem geta ekki gelt.+
Þeir liggja másandi, þeim finnst gott að lúra.
11 Þeir eru gráðugir hundar*sem fá aldrei nægju sína.
Þeir eru hirðar sem skilja ekki neitt.+
Allir fara þeir sína leið,hver og einn hugsar um eigin ávinning og segir:
12 „Komið, ég skal sækja vín,við skulum drekka hraustlega.+
Morgundagurinn verður eins og í dag, bara enn betri!“