Jesaja 9:1–21

  • Mikið ljós í Galíleu (1–7)

    • „Friðarhöfðingi“ fæðist (6, 7)

  • Hönd Guðs gegn Ísrael (8–21)

9  En myrkrið verður ekki eins og þegar neyð var í landinu, eins og fyrr á tímum þegar Sebúlonsland og Naftalíland voru fyrirlitin og hrjáð.+ Síðar meir lætur hann* landið njóta virðingar – veginn til sjávar, Jórdansvæðið, Galíleu þjóðanna.   Fólkið sem gekk í myrkrinuhefur séð mikið ljós. Ljós hefur skiniðá þá sem búa í landi dimmra skugga.+   Þú hefur gert þjóðina fjölmenna,þú hefur gert gleðina mikla. Hún gleðst frammi fyrir þéreins og fólk gleðst á uppskerutímanum,eins og menn gleðjast sem skipta herfangi.   Þú hefur brotið sundur þungt ok þeirra,stafinn á herðum þeirra, staf harðstjórans,eins og á degi Midíans.+   Öll hermannastígvél sem jörðin nötrar undanog öll blóði drifin fötverða brennd í eldi.   Okkur er fætt barn,+okkur er gefinn sonurog valdið* mun hvíla á herðum hans.+ Hann verður nefndur Undraráðgjafi,+ Máttugur guð,+ Eilífðarfaðir, Friðarhöfðingi.   Vald* hans mun sífellt vaxaog friðurinn tekur engan enda,+friðurinn sem hvílir yfir hásæti Davíðs+ og ríki hans. Það verður grundvallað+ og efltmeð réttvísi+ og réttlæti+héðan í frá og að eilífu. Brennandi ákafi Jehóva hersveitanna kemur því til leiðar.   Jehóva sendi Jakobi dómsboðskapog hann er kominn yfir Ísrael.+   Öll þjóðin fær að vita það– Efraím og íbúar Samaríu –allir sem segja í hroka sínum og ósvífni hjartans: 10  „Múrsteinshús eru hruninen við byggjum aftur úr tilhöggnum steini.+ Mórfíkjutré hafa verið fellden við setjum sedrustré í staðinn.“ 11  Jehóva sendir fjandmenn Resíns gegn henniog æsir óvini hennar til átaka, 12  Sýrlendinga úr austri og Filistea úr vestri.+ Þeir gleypa Ísrael með galopnu gini.+ Vegna alls þessa er honum ekki runnin reiðin,hönd hans er enn á lofti til að slá.+ 13  En þjóðin hefur ekki snúið aftur til hans sem slær hana,hún hefur ekki leitað Jehóva hersveitanna.+ 14  Jehóva mun á einum degihöggva af Ísrael höfuð og hala, frjóanga og sef.*+ 15  Öldungar og virtir menn eru höfuðiðog spámenn sem kenna lygar eru halinn.+ 16  Leiðtogar fólksins leiða það afvegaog þeir sem láta leiða sig eru ráðvilltir. 17  Þess vegna gleðst Jehóva ekki yfir ungmennum þeirraog sýnir föðurlausum börnum* þeirra og ekkjum enga miskunnþví að allir eru fráhvarfsmenn og illvirkjar+og sérhver munnur fer með heimsku. Vegna alls þessa er honum ekki runnin reiðin,hönd hans er enn á lofti til að slá.+ 18  Illskan logar eins og eldur,gleypir þyrnirunna og illgresi. Hún kveikir í skógarþykkninuog það fuðrar upp í reyk. 19  Landið logarvegna reiði Jehóva hersveitannaog fólkið verður eldsmatur. Enginn þyrmir neinum, ekki einu sinni bróður sínum. 20  Menn höggva á hægri hönd sér til mataren eru samt jafn svangir. Menn gleypa í sig á vinstri hönden verða ekki saddir. Hver og einn hámar í sig holdið af eigin handlegg, 21  Manasse gleypir Efraímog Efraím Manasse. Saman berjast þeir gegn Júda.+ Vegna alls þessa er honum ekki runnin reiðin,hönd hans er enn á lofti til að slá.+

Neðanmáls

Það er, Guð.
Eða „stjórnvaldið; höfðingjadómurinn“.
Eða „Stjórnvald; Höfðingjadómur“.
Eða hugsanl. „pálmagreinar og reyr“.
Eða „munaðarleysingjum“.