Matteus segir frá 19:1–30
19 Eftir að Jesús hafði lokið máli sínu fór hann frá Galíleu og kom að útjaðri* Júdeu handan við Jórdan.+
2 Fólk fylgdi honum hópum saman og hann læknaði það.
3 Farísear komu til hans, ákveðnir í að reyna hann. Þeir spurðu: „Má maður skilja við konu sína fyrir hvaða sök sem er?“+
4 Hann svaraði: „Hafið þið ekki lesið að sá sem skapaði þau í upphafi gerði þau karl og konu+
5 og sagði: ‚Af þeirri ástæðu yfirgefur maður föður sinn og móður og binst konu sinni og þau tvö verða eitt‘?*+
6 Þannig eru þau ekki lengur tvö heldur eitt.* Það sem Guð hefur tengt saman má enginn maður aðskilja.“+
7 Þeir sögðu við hann: „Hvers vegna sagði Móse þá að það mætti gefa henni skilnaðarbréf og skilja við hana?“+
8 Hann svaraði: „Móse gerði þá tilslökun að þið mættuð skilja við eiginkonur ykkar vegna þess hve harðbrjósta þið eruð+ en þannig var það ekki frá upphafi.+
9 Ég segi ykkur að sá sem skilur við konu sína fyrir aðra sök en kynferðislegt siðleysi* og giftist annarri fremur hjúskaparbrot.“+
10 Lærisveinarnir sögðu við hann: „Fyrst sambandi karls og konu er þannig háttað er ekki ráðlegt að giftast.“
11 Hann sagði við þá: „Það er ekki á allra færi að gera eins og ég segi heldur aðeins þeirra sem það er gefið.+
12 Sumir eru fæddir þannig að þeir geta ekki gifst* og sumir eru þannig af mannavöldum en sumir neita sér um að giftast* til að geta helgað sig himnaríki. Sá sem hefur tök á því ætti að gera það.“+
13 Fólk kom nú til hans með börn til að hann legði hendur yfir þau og bæði fyrir þeim. Lærisveinarnir ávítuðu fólkið+
14 en Jesús sagði: „Látið börnin í friði og reynið ekki að hindra að þau komi til mín því að himnaríki tilheyrir þeim sem eru eins og þau.“+
15 Og hann lagði hendur yfir þau og fór síðan þaðan.
16 Þá kom til hans ungur maður og sagði: „Kennari, hvað gott þarf ég að gera til að hljóta eilíft líf?“+
17 Jesús svaraði: „Hvers vegna spyrðu mig hvað sé gott? Aðeins einn er góður.+ En ef þú vilt ganga inn til lífsins skaltu halda boðorðin.“+
18 „Hvaða boðorð?“ spurði hann. Jesús svaraði: „Þú skalt ekki myrða,+ þú skalt ekki fremja hjúskaparbrot,+ þú skalt ekki stela,+ þú skalt ekki bera ljúgvitni,+
19 sýndu föður þínum og móður virðingu+ og þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“+
20 Ungi maðurinn sagði við hann: „Ég hef haldið allt þetta. Hvað fleira þarf ég að gera?“
21 Jesús svaraði: „Ef þú vilt vera fullkominn farðu þá og seldu eigur þínar og gefðu fátækum og þá áttu fjársjóð á himni.+ Komdu síðan og fylgdu mér.“+
22 Ungi maðurinn fór hryggur burt þegar hann heyrði þetta því að hann átti miklar eignir.+
23 Jesús sagði þá við lærisveinana: „Trúið mér, það verður erfitt fyrir ríkan mann að komast inn í himnaríki.+
24 Ég segi ykkur að það er auðveldara fyrir úlfalda að komast gegnum nálarauga en fyrir ríkan mann að ganga inn í ríki Guðs.“+
25 Þegar lærisveinarnir heyrðu þetta voru þeir steini lostnir og sögðu: „Hver getur þá eiginlega bjargast?“+
26 Jesús horfði einbeittur á þá og sagði: „Mönnum er það ógerlegt en Guð getur allt.“+
27 Þá sagði Pétur: „Við höfum yfirgefið allt og fylgt þér. Hvað fáum við?“+
28 Jesús sagði við þá: „Trúið mér, þegar allt verður endurnýjað* og Mannssonurinn sest í dýrlegt hásæti sitt munuð þið sem hafið fylgt mér sitja í 12 hásætum og dæma 12 ættkvíslir Ísraels.+
29 Og allir sem hafa yfirgefið heimili, bræður eða systur, föður eða móður, börn eða landareignir vegna nafns míns fá hundraðfalt aftur og hljóta eilíft líf.+
30 En margir hinna fyrstu verða síðastir og hinna síðustu fyrstir.+
Neðanmáls
^ Eða „landamærum“.
^ Orðrétt „eitt hold“.
^ Orðrétt „eitt hold“.
^ Á grísku pornei′a. Sjá orðaskýringar.
^ Orðrétt „fæddir geldingar“.
^ Orðrétt „gera sig að geldingum“.
^ Eða „endurskapað“.