Matteus segir frá 20:1–34
20 Himnaríki má líkja við landeiganda sem fór út snemma morguns til að ráða verkamenn í víngarð sinn.+
2 Eftir að hafa samið við verkamennina um denar* í daglaun sendi hann þá í víngarðinn.
3 Um þriðju stund* fór hann aftur út og sá menn standa atvinnulausa á markaðstorginu.
4 Hann sagði við þá: ‚Farið þið líka í víngarðinn og ég skal greiða ykkur sanngjörn laun,‘
5 og þeir fóru. Hann fór einnig út um sjöttu stund* og níundu stund* og réð fleiri.
6 Að lokum, um elleftu stund,* fór hann út og fann aftur menn sem stóðu þar og hann sagði við þá: ‚Hvers vegna hafið þið staðið hér atvinnulausir allan daginn?‘
7 ‚Vegna þess að enginn hefur ráðið okkur,‘ svöruðu þeir. Hann sagði þá: ‚Farið þið líka í víngarðinn.‘
8 Um kvöldið sagði víngarðseigandinn við verkstjóra sinn: ‚Kallaðu á verkamennina og greiddu þeim kaupið.+ Byrjaðu á þeim síðustu og endaðu á þeim fyrstu.‘
9 Þeir sem voru ráðnir á elleftu stund komu nú og fengu hver sinn denar.*
10 Þegar þeir fyrstu komu bjuggust þeir við að fá meira, en þeir fengu líka sinn denarinn* hver.
11 Þá fóru þeir að kvarta við landeigandann
12 og sögðu: ‚Þeir sem komu síðast unnu eina stund. Samt fá þeir sama kaup og við sem höfum stritað allan daginn í steikjandi hitanum.‘
13 En hann svaraði einum þeirra: ‚Vinur, ég er ekki ósanngjarn við þig. Sömdum við ekki um einn denar?*+
14 Taktu kaupið þitt og farðu leiðar þinnar. Ég vil greiða þeim síðasta það sama og þér.
15 Ræð ég ekki sjálfur hvað ég geri við eigið fé? Eða ertu öfundsjúkur* af því að ég er örlátur?‘*+
16 Þannig verða hinir síðustu fyrstir og hinir fyrstu síðastir.“+
17 Á leiðinni upp til Jerúsalem tók Jesús lærisveinana 12 afsíðis og sagði einslega við þá:+
18 „Nú erum við á leið upp til Jerúsalem og Mannssonurinn verður látinn í hendur yfirpresta og fræðimanna. Þeir munu dæma hann til dauða+
19 og láta hann í hendur manna af þjóðunum sem munu hæðast að honum, húðstrýkja og staurfesta,+ en á þriðja degi verður hann reistur upp.“+
20 Nú kom móðir Sebedeussona+ til hans ásamt sonum sínum, kraup fyrir honum* og bað hann um greiða.+
21 „Hvað viltu?“ spurði hann. Hún svaraði: „Lofaðu að synir mínir tveir fái að sitja við hlið þér í ríki þínu, annar til hægri handar og hinn til vinstri.“+
22 Jesús sagði: „Þið vitið ekki um hvað þið biðjið. Getið þið drukkið bikarinn sem ég á að drekka?“+ „Við getum það,“ svöruðu þeir.
23 Hann sagði við þá: „Þið skuluð vissulega drekka bikar minn+ en það er ekki mitt að ákveða hver situr mér til hægri handar og vinstri. Þessi sæti eru tekin frá handa þeim sem faðir minn hefur ákveðið að sitji þar.“+
24 Þegar hinir tíu heyrðu af þessu urðu þeir gramir út í bræðurna tvo.+
25 En Jesús kallaði þá til sín og sagði: „Þið vitið að þeir sem ráða yfir þjóðunum drottna yfir þeim og háttsettir menn beita valdi sínu.+
26 Þannig má það ekki vera hjá ykkur.+ Sá sem vill verða mikill á meðal ykkar á að vera þjónn ykkar+
27 og sá sem vill vera fremstur á meðal ykkar á að vera þræll ykkar,+
28 rétt eins og Mannssonurinn sem kom ekki til að láta þjóna sér heldur til að þjóna+ og gefa líf sitt sem lausnargjald fyrir marga.“+
29 Mikill mannfjöldi fylgdi honum þegar þeir fóru frá Jeríkó.
30 Tveir blindir menn sátu við veginn. Þegar þeir heyrðu að Jesús ætti leið hjá hrópuðu þeir: „Drottinn sonur Davíðs, miskunnaðu okkur!“+
31 Fólkið hastaði á þá og sagði þeim að þegja en þeir hrópuðu bara enn hærra: „Drottinn sonur Davíðs, miskunnaðu okkur!“
32 Jesús nam þá staðar, kallaði á þá og sagði: „Hvað viljið þið að ég geri fyrir ykkur?“
33 Þeir sögðu við hann: „Drottinn, opnaðu augu okkar.“
34 Jesús kenndi í brjósti um þá, snerti augu þeirra+ og þeir endurheimtu sjónina samstundis og fylgdu honum.
Neðanmáls
^ Sjá viðauka B14.
^ Það er, um kl. 9.
^ Það er, um kl. 12.
^ Það er, um kl. 15.
^ Það er, um kl. 17.
^ Sjá viðauka B14.
^ Sjá viðauka B14.
^ Sjá viðauka B14.
^ Orðrétt „er auga þitt illt“.
^ Eða „góður“.
^ Eða „veitti honum lotningu“.