Postulasagan 6:1–15
6 Á þessum tíma, þegar lærisveinunum fjölgaði, fóru grískumælandi Gyðingar að kvarta við þá hebreskumælandi yfir því að ekkjur þeirra væru hafðar út undan við daglega úthlutun.+
2 Þeir tólf kölluðu þá saman allan lærisveinahópinn og sögðu: „Það væri ekki rétt af okkur að hætta* að kenna orð Guðs til að þjóna til borðs.+
3 Bræður, veljið því sjö menn úr ykkar hópi, menn sem eru í góðu áliti+ og eru fullir anda og visku,+ svo að við getum sett þá yfir þetta mikilvæga verkefni.+
4 Við getum þá helgað okkur því að biðja og kenna orðið.“*
5 Allir voru ánægðir með þetta og þeir völdu Stefán, mann sem hafði sterka trú og var fullur af heilögum anda, og einnig Filippus,+ Prókorus, Níkanor, Tímon, Parmenas og Nikolás sem var trúskiptingur frá Antíokkíu.
6 Þeir leiddu þá til postulanna sem fóru með bæn og lögðu hendur yfir þá.+
7 Orð Guðs hélt því áfram að breiðast út,+ lærisveinunum fjölgaði mjög+ í Jerúsalem og mikill fjöldi presta snerist til trúar.+
8 Stefán naut velvildar Guðs og fékk kraft frá honum og gerði mikil undur og tákn meðal fólksins.
9 En nokkrir menn úr svonefndri Leysingjasamkundu gengu fram ásamt mönnum frá Kýrene, Alexandríu, Kilikíu og Asíu og fóru að deila við Stefán.
10 Þeir máttu sín þó lítils gegn visku hans og þeim anda sem hann talaði af.+
11 Þá fengu þeir menn með leynd til að segja: „Við höfum heyrt hann lastmæla Móse og Guði.“
12 Og þeir æstu upp fólkið, öldungana og fræðimennina, réðust skyndilega að honum, tóku hann með valdi og færðu fyrir Æðstaráðið.
13 Síðan leiddu þeir fram ljúgvitni sem sögðu: „Þessi maður hættir ekki að tala gegn þessum heilaga stað og gegn lögunum.
14 Við höfum til dæmis heyrt hann segja að þessi Jesús frá Nasaret muni brjóta niður musterið og breyta þeim siðum sem við fengum frá Móse.“
15 Allir sem sátu í Æðstaráðinu störðu á hann og sáu að andlit hans var eins og andlit engils.