SPURNING 19
Hvað innihalda bækur Biblíunnar?
HEBRESKU RITNINGARNAR (GAMLA TESTAMENTIÐ)
MÓSEBÆKURNAR (5 BÆKUR):
1. til 5. Mósebók
Frá sköpuninni til stofnunar Ísraelsþjóðarinnar.
SÖGULEGAR BÆKUR (12 BÆKUR):
Jósúabók, Dómarabókin, Rutarbók
För Ísraelsmanna inn í fyrirheitna landið og atburðir í tengslum við það.
1. og 2. Samúelsbók, 1. og 2. Konungabók, 1. og 2. Kroníkubók
Saga Ísraelsþjóðarinnar fram að eyðingu Jerúsalem.
Esrabók, Nehemíabók, Esterarbók
Saga Gyðinga eftir heimkomuna úr útlegðinni í Babýlon.
LJÓÐRÆNAR BÆKUR (5 BÆKUR):
Jobsbók, Sálmarnir, Orðskviðirnir, Prédikarinn, Ljóðaljóðin
Safn spakmæla og ljóða.
SPÁDÓMSBÆKUR (17 BÆKUR):
Jesaja, Jeremía, Harmljóðin, Esekíel, Daníel, Hósea, Jóel, Amos, Óbadía, Jónas, Míka, Nahúm, Habakkuk, Sefanía, Haggaí, Sakaría, Malakí
Spádómar sem snerta þjóð Guðs.
GRÍSKU RITNINGARNAR (NÝJA TESTAMENTIÐ)
GUÐSPJÖLLIN (4 BÆKUR):
Matteus, Markús, Lúkas, Jóhannes
Sagan af ævi og þjónustu Jesú.
POSTULASAGAN (1 BÓK):
Saga fyrstu ára kristna safnaðarins og trúboðs hans.
BRÉFIN (21 BÓK):
Rómverjabréfið, 1. og 2. Korintubréf, Galatabréfið, Efesusbréfið, Filippíbréfið, Kólossubréfið, 1. og 2. Þessaloníkubréf
Bréf til ýmissa kristinna safnaða.
1. og 2. Tímóteusarbréf, Títusarbréfið, Fílemonsbréfið
Bréf til kristinna einstaklinga.
Hebreabréfið, Jakobsbréfið, 1. og 2. Pétursbréf, 1., 2. og 3. Jóhannesarbréf, Júdasarbréfið
Almenn bréf til kristinna manna.
OPINBERUNARBÓKIN (1 BÓK):
Spádómlegar sýnir sem Jóhannes fékk að sjá.