Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

SPURNING 10

Hverju er lofað í Biblíunni varðandi framtíðina?

„Hinir réttlátu munu erfa jörðina og búa á henni að eilífu.“

Sálmur 37:29

„Jörðin stendur að eilífu.“

Prédikarinn 1:4

„Hann mun afmá dauðann að eilífu og alvaldur Drottinn Jehóva þurrkar tárin af vöngum allra.“

Jesaja 25:8

„Þá munu augu blindra opnast og eyru heyrnarlausra ljúkast upp. Þá stekkur hinn halti eins og hjörtur og tunga hins mállausa hrópar af gleði. Vatn sprettur fram í óbyggðunum og ár streyma um eyðisléttuna.“

Jesaja 35:5, 6

„Hann mun þerra hvert tár af augum þeirra og dauðinn verður ekki til framar. Engin sorg, angistaróp né kvöl verður heldur til. Það sem áður var er horfið.“

Opinberunarbókin 21:4

„Menn munu byggja hús og búa í þeim og planta víngarða og neyta ávaxta þeirra. Þeir munu ekki byggja hús til að aðrir búi í þeim né planta til að aðrir geti borðað. Fólk mitt verður langlíft eins og trén og mínir útvöldu munu njóta handaverka sinna til fulls.“

Jesaja 65:21, 22