HALTU VÖKU ÞINNI
Vísindamenn færa dómsdagsklukkuna fram – hvað segir Biblían?
Þann 24. janúar 2023 gáfu vísindamenn til kynna að við værum nær heimsendi með því að færa vísana á dómsdagsklukkunni a nær miðnætti.
„Dómsdagsklukkan, sem táknar vá fyrir mannkynið, var á þriðjudag stillt nær miðnætti en nokkru sinni fyrr. Ákvörðunin var tekin vegna stríðsins í Úkraínu, aukinnar hættu á kjarnorkustríði og loftslagsvár.“ – AFP International Text Wire.
„Vísindamenn tilkynntu á þriðjudag að dómsdagsklukkan hefði verið stillt á 90 sekúndur í miðnætti. Mannkynið hefur aldrei áður verið jafn nálægt Harmagedón.“ – ABC News.
„Alþjóðlegur hópur vísindamanna hefur gefið okkur viðvörun um að tilvist mannkynsins sé í meiri hættu en nokkru sinni fyrr.“ – The Guardian.
Eru endalok mannkynsins og jarðarinnar yfirvofandi? Þurfum við að óttast það sem framtíðin ber í skauti sér? Hvað segir Biblían?
Það sem framtíðin ber í skauti sér
„Jörðin stendur að eilífu,“ segir í Biblíunni. Hún segir líka að fólk muni „búa á henni að eilífu“. (Prédikarinn 1:4; Sálmur 37:29) Mannkynið fær þess vegna ekki að eyðileggja jörðina eða gera hana óbyggilega.
Biblían talar þó um heimsendi. Hún segir til dæmis: „Heimurinn líður undir lok.“ – 1. Jóhannesarbréf 2:17.
Lestu greinina „Er að koma heimsendir? Segir Biblían fyrir um algera eyðingu?“ til að sjá hvað er átt við þegar Biblían talar um heimsendi.
Þú getur kynnt þér hvað Biblían segir um hvenær ókomnir heimsatburðir muni eiga sér stað með því að lesa greinina „Hvenær kemur að endalokum þessa heims?“
Við getum verið bjartsýn
Biblían getur hjálpað okkur að vera jákvæð þrátt fyrir vandamálin í heiminum. Hvernig?
Biblían gefur okkur hagnýt ráð. (2. Tímóteusarbréf 3:16, 17) Í greininni „Hvernig er hægt að hafa stjórn á áhyggjum?“ sérðu til dæmis hvernig Biblían getur hjálpað þér að vera jákvæður þrátt fyrir erfiðleika lífsins.
Biblían veitir örugga framtíðarvon. (Rómverjabréfið 15:4) Hún útskýrir hvers við megum vænta nú og í framtíðinni en það getur veitt okkur öryggiskennd andspænis heimsatburðum.
Til að þú fáir sem mest út úr því að skoða Biblíuna hvetjum við þig til að prófa ókeypis biblíunámskeið sem við bjóðum upp á.
a „Dómsdagsklukkan segir almenningi hversu nálægt við séum komin að því að eyðileggja jörðina með hættulegri tækni sem við höfum hannað. Dómsdagsklukkan er táknmynd, áminning um þá vá sem við þurfum að beina athygli að til að halda lífi hér á jörðinni.“ – Bulletin of the Atomic Scientists.