HALTU VÖKU ÞINNI
Hamfaraflóð – hvað segir Biblían?
Hamfaraflóð víða um heim hafa sett líf margra úr skorðum. Hér eru nokkur dæmi um fréttir af slíkum flóðum:
„Undanfarna daga hefur mælst mesta úrkoma í 140 ár í höfuðborg Kína. Úrkoman mældist … 744,8 millimetrar frá laugardegi til miðvikudags.“ – AP fréttastofan, 2. ágúst 2023.
„Fellibylurinn Khanun olli miklum rigningum og hvassviðri í suðurhluta Japans á fimmtudag, annan daginn í röð. Að minnsta kosti tveir týndu lífi … Búist er við að úrkoman verði allt að 600 millimetrar til fjalla um miðbik Taívans.“ – Deutsche Welle, 3. ágúst 2023.
„Flóðin um helgina [í Nova Scotia] stöfuðu af mestu rigningum sem orðið hafa við Atlantshafsstrendur Kanada síðastliðin 50 ár.“ – Fréttastofa BBC, 24. júlí 2023.
Hvað segir Biblían um atburði af þessu tagi?
Tákn ‚síðustu daga‘
Í Biblíunni kemur fram að við lifum á tímabili sem kallast ‚síðustu dagar‘. (2. Tímóteusarbréf 3:1) Jesús spáði að við myndum verða vitni að ‚ógnvekjandi atburðum‘ á okkar dögum. (Lúkas 21:11)Loftslagsbreytingar hafa átt stóran þátt í ógnvekjandi veðurofsa sem er ófyrirsjáanlegri, tíðari og öfgakenndari en áður.
Tilefni til að vera bjartsýn
Biblían segir að þeir mörgu ógnvekjandi atburðir sem eiga sér stað nú á dögum gefi okkur í rauninni ástæðu til að vera bjartsýn. Af hverju? Jesús sagði: ‚Þið skuluð vita þegar þið sjáið þetta gerast að ríki Guðs er í nánd.‘ – Lúkas 21:31; Matteus 24:3.
Þeir atburðir sem við horfum upp á núna gefa til kynna að ríki Guðs láti bráðlega til sín taka og nái fullri stjórn á náttúruöflunum, þar á meðal hringrás vatnsins. – Jobsbók 36:27, 28; Sálmur 107:29.
Í greininni „Hver mun bjarga jörðinni?“ er að finna nánari upplýsingar um það hvernig ríki Guðs mun bæta það sem hefur farið úrskeiðis í umhverfismálum.