Hvað mun ríki Guðs gera varðandi spillta stjórnmálamenn?
Fólk vill fá stjórnmálaleiðtoga sem það getur treyst, það er orðið þreytt á spilltum stjórnmálamönnum. Í könnun sem var gerð víða um heim og birtist árið 2023 voru stjórnmálaleiðtogar sá hópur sem fólk bar minnst traust til. a
Biblían lýsir ríkisstjórn með fullkomlega áreiðanlegum og heiðarlegum leiðtoga sem er laus við alla spillingu. Þessi ríkisstjórn er Guðsríki og leiðtoginn er Jesús Kristur. – Jesaja 9:7.
Jesús hefur sannað með verkum sínum að honum er innilega annt um fólk. (Matteus 9:35, 36) Sem konungur í ríki Guðs mun hann koma á réttlæti og friði fyrir alla þá sem lúta forystu hans. – Sálmur 72:12–14.
a 2023 Edelman Trust Barometer Global Report.