BOÐUNARÁTAK FYRIR MINNINGARHÁTÍÐINA
Jesús mun binda enda á stríð
Meðan Jesús var á jörðinni sýndi hann að hann elskaði fólk innilega. Hann fórnaði meira að segja lífi sínu fyrir það. (Matteus 20:28; Jóhannes 15:13) Innan skamms sýnir hann aftur kærleika sinn í garð fólks þegar hann notar vald sitt sem konungur Guðsríkis til að ‚stöðva stríð um alla jörð‘. – Sálmur 46:9.
Sjáðu hvað Biblían segir um það sem Jesús á eftir að gera:
„Hann bjargar hinum fátæka sem hrópar á hjálp, hinum bágstadda og þeim sem enginn hjálpar. Hann mun finna til með bágstöddum og snauðum og bjarga lífi fátækra. Hann frelsar þá undan kúgun og ofbeldi.“ – Sálmur 72:12–14.
Hvernig getum við sýnt að við séum þakklát fyrir allt sem Jesús hefur gert og ætlar að gera fyrir okkur? Í Lúkasi 22:19 segir Jesús fylgjendum sínum að minnast dauða síns. Þess vegna safnast vottar Jehóva saman á hverju ári á þeim degi sem dauða hans bar upp á. Við bjóðum þér að minnast dauða Jesú með okkur sunnudaginn 24. mars 2024.