Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

Sérstakt átak til að dreifa Varðturninum í september

Sérstakt átak til að dreifa Varðturninum í september

Fólk um allan heim þarfnast huggunar og hughreystingar. (Préd 4:1) Allan septembermánuð ætlum við að gera sérstakt átak í að bjóða Varðturninn sem fjallar að þessu sinni um huggun. Við skulum koma þessu blaði í hendur sem flestra. Þar sem við viljum tala við fólk augliti til auglitis til að geta hughreyst það skiljum við blöðin ekki eftir þar sem enginn er heima.

HVAÐ GETURÐU SAGT?

„Öll þörfnumst við stundum huggunar. En hvar getum við fundið hana? [Lestu 2. Korintubréf 1:3, 4] Í þessu tölublaði af Varðturninum er fjallað um það hvernig Guð veitir huggun og hughreystingu.“

Ef viðkomandi sýnir áhuga og þiggur blaðið ...

SÝNDU MYNDSKEIÐIÐ HVERS VEGNA ÆTTUM VIÐ AÐ KYNNA OKKUR BIBLÍUNA?

Bjóddu síðan biblíunámskeið.

LEGGÐU GRUNN AÐ ENDURHEIMSÓKN

Varpaðu fram spurningu sem þú svarar þegar þú kemur aftur. Spurningin gæti verið: „Hvers vegna leyfir Guð þjáningar?