Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

Unglingar – vinnið góð verk af dugnaði

Unglingar – vinnið góð verk af dugnaði

Í innblásnu bréfi sínu til Títusar skrifaði Páll að ungir menn, þar á meðal Títus, ættu að gera sitt besta til að að vera „fyrirmynd í góðum verkum“. (Tít 2:6, 7) Síðar í sama kaflanum bendir hann á að fólk Jehóva sé hreinsað til að vera duglegt, ,kostgæfið til góðra verka‘. (Tít 2:14) Eitt af þessum góðu verkum er að boða trúna og fræða fólk um Guðsríki. Ef þú ert ungur gætirðu þá notað krafta þína til að starfa sem aðstoðarbrautryðjandi eða brautryðjandi? – Okv 20:29.

Ef þig langar til að starfa sem brautryðjandi skaltu búa til raunhæfa áætlun sem hjálpar þér að gera það. (Lúk 14:28–30) Hvernig ætlarðu til dæmis að sjá fyrir þér fjárhagslega sem þjónn Jehóva í fullu starfi? Hvernig geturðu náð tímatakmarkinu? Gerðu markmið þitt að bænarefni. (Sl 37:5) Ræddu um áform þín við foreldra þína og þá sem hefur gengið vel í brautryðjendastarfinu. Síðan skaltu hefjast handa við að ná markmiðinu. Jehóva blessar sannarlega viðleitni þeirra sem leggja sig fram í þjónustu hans.

HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ UNGT FÓLK HEIÐRAR JEHÓVA OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:

  • Hvaða áskorunum hafa sumir sigrast á til að verða brautryðjendur og hvernig fóru þeir að því?

  • Hvernig geta foreldrar hjálpað börnunum sínum að gerast brautryðjendur?

  • Hvers vegna er mikilvægt að hafa áætlun fyrir boðunina?

  • Hvernig geta aðrir í söfnuðinum hvatt og hjálpað brautryðjendum?

  • Hvaða blessun hljóta brautryðjendur?

Hvernig get ég náð því markmiði að starfa sem brautryðjandi?