Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

Nýjung til að hefja samræður

Nýjung til að hefja samræður

Greinaflokkurinn „Hverju svarar Biblían?“ hefur verið á baksíðu almennu útgáfu Varðturnsins síðan í janúar 2016Þessi nýjung er gerð til að hjálpa okkur að hefja samræður um málefni tengd Biblíunni. Greinarnar eru með svipuðu sniði og smáritin okkar. Á eftir viðhorfsspurningu kemur svar Biblíunnar og síðan fleiri atriði til umræðu.

Ánægjulegar umræður um málefni Biblíunnar leiða oft til biblíunámskeiðs. Notaðu þessa nýjung til að hjálpa fleirum að seðja andlegt hungur sitt. – Matt 5:6.

HVERNIG GETUM VIÐ NOTAÐ GREINARNAR?

  1. Spyrðu húsráðandann um hans skoðun á einni af spurningunum.

  2. Hlustaðu af virðingu.

  3. Lestu biblíuversið undir yfirskriftinni „Hvað segir Biblían?“ og spyrðu um álit hans á versinu. Ef hann hefur tíma skaltu halda samtalinu áfram og nota atriði undir yfirskriftinni „Fleiri upplýsingar úr Biblíunni“.

  4. Bjóddu blaðið.

  5. Mæltu þér mót við húsráðanda til að koma aftur og ræða um seinni spurninguna.