Tillögur að kynningum
VAKNIÐ!
Spurning: Nú á tímum eru yfirnáttúrulegar sögupersónur eins og galdramenn, nornir og vampírur vinsælar í afþreyingarefni. Heldurðu að þetta sé bara skaðlaus skemmtun eða er þetta varasamt?
Tilboð: Þetta tölublað Vaknið! fjallar um hvers vegna fólk heillast af því sem er yfirnáttúrulegt og hvað býr þar að baki.
KENNUM SANNLEIKANN
Spurning: Hvernig mun ríki Guðs leysa vandamál heimsins?
Biblíuvers: Matt 6:10
Sannleikur: Ríki Guðs mun koma á friði, einingu og öryggi á jörð – eins og það hefur þegar gert á himni.
HVAÐ ER RÍKI GUÐS? (Endurheimsókn)
Spurning: [Vektu athygli á spurningunni „til umhugsunar“ á bakhlið smáritsins.] Hvernig verður lífið undir stjórn Guðsríkis?
Biblíuvers: Slm 37:29; Jes 65:21-23
Tilboð: [Sýndu bæklinginn Gleðifréttir frá Guði.] Í kafla 7 í þessum bæklingi er fjallað um hvaða þýðingu þessi fyrirheit geta haft fyrir þig og mig. [Notaðu bæklinginn til að hefja biblíunámskeið.]
BÚÐU TIL ÞÍNA EIGIN KYNNINGU
Búðu til þína eigin kynningu fyrir boðunina og líktu eftir uppsetningunni að ofan.