Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

FJÁRSJÓÐIR Í ORÐI GUÐS | JEREMÍA 25-28

Verum hugrökk eins og Jeremía

Verum hugrökk eins og Jeremía

Jeremía varaði við því að Jerúsalem yrði lögð í eyði eins og Síló

26:6

  • Sáttmálsörkin sem táknaði nærveru Jehóva var um tíma geymd í Síló.

  • Jehóva leyfði Filisteum að taka örkina herfangi. Henni var aldrei skilað til Síló.

Prestarnir, spámennirnir og allt fólkið hótaði að drepa Jeremía

26:8, 9, 12, 13

  • Fólkið réðst á Jeremía vegna þess að hann flutti boðskap gegn Jerúsalem og musterinu.

  • Jeremía gafst ekki upp og lagði ekki á flótta.

Jehóva verndaði Jeremía

26:16, 24

  • Jeremía sýndi áfram mikið hugrekki og Jehóva yfirgaf hann ekki.

  • Guð fékk Ahíkam, sem var hugrakkur, til að vernda Jeremía.

Jeremía gat með stuðningi og hvatningu Jehóva boðað óvinsælan boðskap í 40 ár