Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

Taktu hlýlega á móti þeim

Taktu hlýlega á móti þeim

Á móti hverjum? Öllum sem koma á safnaðarsamkomur okkar – þeim sem eru nýbyrjaðir að koma og gömlum vinum. (Róm 15:7; Heb 13:2) Trúsystkini frá öðru landi gæti verið í heimsókn eða óvirkur bróðir eða systir að koma í fyrsta skipti í mörg ár. Settu þig í spor þeirra. Þætti þér ekki vænt um að fá hlýlegar móttökur? (Matt 7:12) Hvernig væri að gera meira af því að ganga um ríkissalinn og heilsa fólki fyrir og eftir samkomur? Það stuðlar að hlýju og kærleiksríku andrúmslofti sem er Jehóva til heiðurs. (Matt 5:16) Að öllum líkindum er ekki hægt að spjalla við alla viðstadda. Engu að síður finnst öllum þeir vera velkomnir þegar hver og einn leggur sitt að mörkum. *

Við tökum ekki bara vel á móti gestum við sérstök tækifæri eins og á minningarhátíðinni, heldur alltaf. Þegar gestir sjá og finna kristinn kærleika gæti þá langað til að lofa Guð og taka þátt í sannri tilbeiðslu með okkur. – Jóh 13:35.

^ gr. 3 Meginreglur Biblíunnar takmarka samskipti okkar við þá sem hefur verið vikið úr söfnuðinum og þá sem hafa sjálfir sagt skilið við söfnuðinn en sækja ef til vill samkomur. – 1Kor 5:11; 2Jóh 10.