Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

Hvað er mér mikilvægast?

Hvað er mér mikilvægast?

Jakob glímdi við engil í mjög mikilvægum tilgangi – að hljóta blessun Jehóva. (1Mó 32:24–31; Hós 12:4, 5) Hvað um okkur? Erum við fús að gera allt sem í okkar valdi stendur til að hlýða Jehóva og öðlast blessun hans? Segjum að við þurfum að velja á milli þess að sækja samkomu og vinna fáeinar klukkustundir aukalega. Hvað veljum við að gera? Þegar við gefum Jehóva það besta af tíma okkar, kröftum og efnum þá lofar hann að ,hella yfir okkur óþrjótandi blessun‘. (Mal 3:10) Hann leiðbeinir okkur og verndar og sér fyrir þörfum okkar. – Mt 6:33; Heb 13:5.

HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ EINBEITTU ÞÉR AÐ MARKMIÐUM Í ÞJÓNUSTU GUÐS OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:

  • Hvernig reyndist það sem systirin hafði mikla ánægju af vera prófsteinn fyrir hana?

  • Hvernig gæti atvinna okkar verið prófsteinn?

  • Hvers vegna þurfti Tímóteus að halda áfram að setja sér markmið í þjónustu Guðs, jafnvel sem þroskaður kristinn maður? – 1Tí 4:16.

  • Hvað er mikilvægast í þínu lífi?

    Hvernig sýnum við hvað okkur finnst vera „mikilvægasta starfið“?