LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU
Lofsyngjum Jehóva með gleði
Páll og Sílas sungu Jehóva lof á meðan þeir sátu í fangelsi. (Post 16:25) Söngurinn gaf þeim eflaust styrk til að halda út. Hvað um okkur? Ríkissöngvarnir og aðrir söngvar okkar geta verið okkur hvatning og hjálp til að vera trúföst andspænis prófraunum. Umfram allt eru þeir Jehóva til lofs. (Slm 28:7) Við höfum verið hvött til að leggja alla vega nokkra söngtexta á minnið. Hefurðu reynt að gera það? Við getum lært textana og æft söngva í tilbeiðslustund fjölskyldunnar.
HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ BÖRN LOFA JEHÓVA Í SÖNG OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:
-
Hvaða góðu áhrif getur það haft á okkur að syngja ríkissöngva?
-
Hvernig undirbúa hljóð- og myndbandadeildir upptöku á söng?
-
Hvernig búa börn og fjölskyldur þeirra sig undir upptökur?
-
Hvaða ríkissöngvar eru í uppáhaldi hjá þér og hvers vegna?