Gætum þess að hrasa ekki sjálf eða verða öðrum til hrösunar
Jesús notaði dæmisögur til að benda á hvað það er alvarlegt mál að hrasa eða verða öðrum til hrösunar.
-
Að tæla til falls eða verða öðrum til hrösunar vísar til verknaðar eða aðstæðna sem valda því að einhver tekur ranga stefnu í lífinu, hrasar eða fellur siðferðilega eða syndgar.
-
Þeim sem verður öðrum til hrösunar væri betra að sökkva í sjóinn með myllustein um hálsinn.
-
Jesús sagði fylgjendum sínum að losa sig við það sem gæti orðið þeim til falls jafnvel þótt það væri jafn verðmætt og hönd eða auga.
-
Það væri betra að missa eitthvað sem væri manni dýrmætt og ganga inn í ríki Guðs en að halda í það og enda í Gehenna, sem táknar endanlega tortímingu.
Hvað gæti orðið mér til hrösunar og hvernig get ég varast að verða öðrum til hrösunar?