Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

FJÁRSJÓÐIR Í ORÐI GUÐS | MATTEUS 14-15

Fáeinir næra fjöldann

Fáeinir næra fjöldann

Skömmu fyrir páskahátíðina árið 32 gerði Jesús kraftaverk. Þetta er eina kraftaverkið sem allir fjórir guðspjallaritararnir segja frá.

Þetta kraftaverk er fyrirmynd að aðferð sem Jesús notar enn.

14:16-21

  • Jesús sagði lærisveinum sínum að gefa mannfjöldanum að borða þótt þeir hefðu ekki nema fimm brauð og tvo fiska.

  • Jesús tók brauðin og fiskana og þegar hann hafði farið með bæn lét hann lærisveinana fá matinn og þeir útdeildu honum síðan meðal mannfjöldans.

  • Vegna þessa kraftaverks fengu allir meira en nóg að borða. Jesús lét fáeina lærisveina gefa mörg þúsund manns að borða.

  • Jesús sagði fyrir að hann myndi nota ákveðna boðleið á síðustu dögum til að miðla andlegum „mat á réttum tíma“. – Matt 24:45.

  • Árið 1919 skipaði Jesús ,trúan og hyggin þjón‘, lítinn hóp andasmurðra bræðra, yfir „hjú sín“, þá sem áttu að fá fæðuna.

  • Jesús beitir enn sömu aðferð og á fyrstu öldinni og notar til þess þennan litla hóp andasmurðra bræðra.

Hvernig get ég sýnt að ég viðurkenni og virði þá boðleið sem Jesús notar til að næra fólk andlega?