Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

FJÁRSJÓÐIR Í ORÐI GUÐS | MATTEUS 12-13

Dæmisagan um hveitið og illgresið

Dæmisagan um hveitið og illgresið

Jesús notaði dæmisöguna um hveitið og illgresið til að útskýra hvernig og hvenær hann myndi safna saman öllu hveitinu meðal mannkyns, það er að segja hópi hinna andasmurðu. Dæmisagan byrjaði að uppfyllast árið 33.

13:24

,Maður sáði góðu korni í akur sinn.‘

  • Sáðmaðurinn: Jesús Kristur.

  • Góða kornið sem var sáð: Lærisveinar Jesú eru smurðir heilögum anda.

  • Akurinn: Mannheimurinn.

13:25

,Er menn voru í svefni kom óvinur hans og sáði illgresi meðal hveitisins.‘

  • Óvinurinn: Djöfullinn.

  • Menn sváfu: Postularnir dánir.

13:30

„Látið hvort tveggja vaxa saman fram að kornskurði.“

  • Hveitið: Andasmurðir kristnir menn.

  • Illgresið: Falskristnir menn.

„Safnið fyrst illgresinu ... en hirðið hveitið.“

  • Þjónar/kornskurðarmenn: Englar.

  • Illgresinu safnað: Falskristnir menn aðgreindir frá andasmurðum kristnum mönnum.

  • Hveitið hirt í hlöðu. Andasmurðum kristnum mönnum safnað í endurreistan söfnuð.

Hvað aðgreindi sannkristna menn frá falskristnum þegar uppskerutíminn hófst?

Hvaða gagn hef ég af því að skilja þessa dæmisögu?