LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU
Komdu fram við rosknar konur sem mæður og yngri konur sem systur
Í Biblíunni er okkur sagt að koma fram við roskin trúsystkini okkar eins og þau væru mæður okkar eða feður og þau yngri eins og systkini okkar. (Lestu 1. Tímóteusarbréf 5:1, 2.) Bræður ættu séstaklega að gæta þess að sýna systrum virðingu.
Bróðir ætti aldrei að daðra eða gera nokkuð sem gæti látið systur líða illa í návist hans. (Job 31:1) Ógiftur bróðir ætti ekki að leika sér að tilfinningum ógiftrar systur og láta hana halda að hann hafi rómantískt samband í huga ef svo er ekki.
Öldungar ættu að vera vingjarnlegir og hlusta á systur sem spyrja kurteislega eða benda jafnvel á eitthvað sem gæti þurft að sinna. Öldungar sýna systrum sérstaka hugulsemi sem eiga ekki eiginmann sem verndar þær. – Rut 2:8, 9.
HORFÐU Á MYNDBANDIÐ SÝNUM ÓBILANDI KÆRLEIKA Í SÖFNUÐINUM GAGNVART – EKKJUM OG FÖÐURLAUSUM OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:
-
Hvernig sýndi söfnuðurinn systur Myint einstakan kærleika?
-
Hvernig sáu þorpsbúar að kærleikurinn sem söfnuðurinn sýndi bar fagurt vitni um trú okkar?
-
Hvaða áhrif hafði kærleikur safnaðarins á dætur Myint?
Hvernig gætir þú sýnt í verki að þér er annt um systurnar í söfnuðinum þínum?