Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

FJÁRSJÓÐIR Í ORÐI GUÐS | SÁLMAR 45-51

Jehóva hafnar ekki þeim sem hafa sundurmarið hjarta

Jehóva hafnar ekki þeim sem hafa sundurmarið hjarta

Davíð skrifaði Sálm 51 eftir að Natan leiddi Davíð fyrir sjónir að hann hefði drýgt alvarlega synd með Batsebu. Davíð fylltist sektarkennd og játaði auðmjúklega synd sína. – 2Sam 12:1-14.

Davíð hafði syndgað en hafði möguleika á að ná sér andlega

51:5, 6, 10-14, 19

  • Áður en hann iðraðist og játaði synd sína leið honum ömurlega vegna þess að hann hafði slæma samvisku.

  • Þjáning hans vegna vanþóknunar Guðs var svo mikil að honum fannst eins og bein sín væru sundurmarin.

  • Hann þráði að fá fyrirgefningu, endurheimta sambandið við Guð og gleðina sem hann hafði áður notið.

  • Hann bað Jehóva auðmjúklega um hjálp til að fá löngun til að hlýða.

  • Hann treysti því að Jehóva myndi fyrirgefa sér.