LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU
Foreldrar, veitið börnunum besta tækifærið til að vegna vel
Það er æðsta ósk guðhræddra foreldra að börnin þeirra verði trúir þjónar Jehóva. Foreldrar geta hjálpað börnunum með því að leitast við að ná til hjartna þeirra og brýna kenningar Biblíunnar fyrir þeim allt frá unga aldri. (5Mós 6:7; Okv 22:6) Krefst það fórnfýsi? Já, svo sannarlega. En umbunin er erfiðisins virði. – 3Jóh 4.
Foreldrar geta lært margt af Jósef og Maríu. Þau „ferðuðust ár hvert til Jerúsalem á páskahátíðinni,“ þótt það hafi verið mikil fyrirhöfn og kostnaðarsamt. (Lúk 2:41) Þau hafa greinilega látið sambandið við Jehóva ganga fyrir öðru. Nú á dögum geta foreldrar beint börnum sínum rétta leið með því að nota hvert tækifæri til að fræða þau með orðum sínum og fordæmi. – Slm 127:3-5.
HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ ÞAU NOTUÐU HVERT TÆKIFÆRI OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:
-
Hvernig létu Jon og Sharon Schiller þjónustuna við Jehóva hafa forgang á sama tíma og þau ólu upp börnin?
-
Hvers vegna þurfa foreldrar að sníða agann að hverju barni fyrir sig?
-
Hvernig geta foreldrar undirbúið börnin svo að þau geti staðist trúarprófraunir?
-
Hvaða verkfæri sem söfnuður Jehóva sér okkur fyrir hefur þú notað til að hjálpa börnunum þínum að þroskast í trúnni?