LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU
Hvað geturðu lært af þeim sem hafa þjónað Jehóva lengi?
Í söfnuði Jehóva eru margir sem hafa þjónað honum áratugum saman. Við getum lært af þeim að reiða okkur á Jehóva. Við getum spurt þessi trúsystkini okkar út í sögu safnaðar Jehóva og um þá erfiðleika sem þau hafa sigrast á með hjálp Jehóva. Við gætum boðið einhverjum þeirra að vera með okkur í tilbeiðslustund fjölskyldunnar og segja frá reynslu sinni.
Ef þú hefur verið vottur Jehóva lengi skaltu vera fús að segja þeim sem yngri eru frá trú þinni. Jakob og Jósef sögðu afkomendum sínum frá reynslu sinni. (1Mó 48:21, 22; 50:24, 25) Jehóva sagði seinna að foreldrar ættu að fræða börnin sín um máttarverk Jehóva. (5Mó 4:9, 10; Sl 78:4–7) Foreldrar og aðrir í söfnuðinum geta sagt ungu kynslóðinni frá öllu því stórkostlega sem þeir hafa séð Jehóva framkvæma fyrir milligöngu safnaðarins.
HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ EINING VARÐVEITT Á BANNÁRUM OG SVARAÐU EFTIRFARANDI SPURNINGUM:
-
Hvernig hjálpaði deildarskrifstofan í Austurríki trúsystkinum okkar í nokkrum löndum þar sem starfið var bannað?
-
Hvernig gátu trúsystkini okkar í þessum löndum viðhaldið sterkri trú?
-
Hvers vegna yfirgáfu margir boðberar í Rúmeníu söfnuð Jehóva og hvernig sneru þeir aftur?
-
Hvernig styrkja þessar frásögur trú þína?