LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU
Það er heiður að byggja og viðhalda tilbeiðslustöðum okkar
Bygging musterisins í Ísrael kostaði mikla vinnu og fjármuni. En Ísraelsmenn studdu verkefnið af kappi. (1Kro 29:2-9; 2Kro 6:7, 8) Þegar byggingu musterisins var lokið endurspeglaði viðhald þess hvort Ísraelsmenn höfðu gott samband við Jehóva eða ekki. (2Kon 22:3-6; 2Kro 28:24; 29:3) Nú á dögum leggja kristnir menn mikið á sig við að byggja, þrífa og viðhalda ríkissölum og mótshöllum. Það er mikill heiður að fá að vinna þannig með Jehóva og hluti af heilagri þjónustu okkar. – Slm 127:1; Opb 7:15
VIÐ GETUM TEKIÐ ÞÁTT Í EFTIRFARANDI:
-
Að hjálpa til að hafa snyrtilegt eftir hverja samkomu, í það minnsta í kringum sætið þitt.
-
Skipulögðum þrifum og viðhaldi á ríkissalnum. Margar hendur vinna létt verk. – lv bls. 92-93 gr. 18.
-
Að gefa frjáls framlög. Lítið framlag virði ,tveggja smápeninga‘ gefið af heilu hjarta gleður líka Jehóva. – Mrk 12:41-44.
-
Aðstoðað við að reisa og endurnýja byggingar safnaðarins eins og aðstæður okkar leyfa. Reynslu af byggingarvinnu er ekki krafist.