LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU
Veldu að þjóna Jehóva
Ert þú biblíunemandi eða ungur óskírður boðberi? Ef svo er, hefurðu sett þér það markmið að láta skírast? Hvers vegna ættirðu að láta skírast? Þeir sem vígja líf sitt Jehóva og láta skírast eignast sérstakt samband við hann. (Sl 91:1) Vígsla og skírn leiðir líka til björgunar. (1Pé 3:21) Hvernig geturðu náð þessum áfanga?
Sannaðu fyrir sjálfum þér að þetta sé sannleikurinn. Þegar spurningar koma upp í hugann skaltu skoða þær og finna svörin. (Róm 12:2) Athugaðu hvaða breytingar þú þarft að gera og láttu kærleikann til Jehóva knýja þig til að gera þessar breytingar. (Okv 27:11; Ef 4:23, 24) Biddu stöðugt til Jehóva um hjálp. Þú mátt treysta því að hann gefi þér styrk og styðji þig með krafti heilags anda. (1Pé 5:10, 11) Það sem þú leggur á þig er vel þess virði. Það jafnast ekkert á við það að þjóna Jehóva. – Sl 16:11.
HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ LEIÐIN TIL SKÍRNAR OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:
-
Hvaða hindranir hafa sumir yfirstigið til að geta látið skírast?
-
Hvernig geturðu byggt upp nægilega sterka trú til að vígja þig Jehóva?
-
Hvað hefur verið mörgum hvatning til að stíga nauðsynleg skref til að geta látið skírast?
-
Hvernig blessar Jehóva þá sem kjósa að þjóna honum?
-
Hvað felur vígsla og skírn í sér?