Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

Árleg mót – tækifæri til að sýna kærleika

Árleg mót – tækifæri til að sýna kærleika

Hvers vegna veita árlegu mótin svona mikla gleði? Mótin gefa okkur tækifæri til að tilbiðja Jehóva með hundruðum, jafnvel þúsundum trúsystkina okkar, líkt og gert var í Ísrael til forna. Við njótum andlegu veislufæðunnar. Við metum líka mikils þær dýrmætu stundir sem við verjum með vinum og fjölskyldu. Við erum innilega þakklát og erum því staðráðin í að mæta alla þrjá mótsdagana.

Þegar við fáum tækifæri til að safnast saman ættum við ekki bara að hugsa um það sem við fáum út úr því heldur hvernig við getum sýnt öðrum kærleika. (Ga 6:10; Heb 10:24, 25) Við sýnum að við hugsum um hag annarra þegar við höldum dyrum opnum fyrir trúbróður eða -systur og tökum aðeins frá þau sæti sem við þurfum. (Fil 2:3, 4) Mótin veita frábær tækifæri til að eignast nýja vini. Fyrir og eftir dagskrána og í hádegishléinu getum við lagt okkur fram um að tala við einhvern sem við þekkjum ekki. (2Kor 6:13) Vináttan sem við eignumst við þessi tækifæri getur enst alla ævi. Og það sem er ekki síður mikilvægt er að þegar gestir og aðrir sjá kærleikann sem ríkir meðal okkar, gæti það orðið til þess að þeir ákveði að þjóna Jehóva með okkur. – Jóh 13:35.

HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ „KÆRLEIKURINN BREGST ALDREI“ – ALÞJÓÐAMÓT OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:

  • Hvernig var boðsgestum frá öðrum löndum sýndur kærleikur á alþjóðamótunum 2019?

  • Hvað er einstakt við eininguna og kærleikann sem ríkir meðal fólks Jehóva?

  • Hvaða þætti kristins kærleika fjölluðu bræðurnir í hinu stjórnandi ráði um?

  • Hvernig getur þú sýnt kærleika á mótunum?

    Hvernig hefur kristinn kærleikur sigrað í Þýskalandi og Suður-Kóreu?

  • Hvað ættum við að vera staðráðin í að gera?