Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

Það sem má læra af ævi Samúels

Það sem má læra af ævi Samúels

Samúel var Jehóva trúr alla ævi. Á barnsaldri vildi hann alls ekki verða siðspilltur eins og Hofní og Pínehas synir Elí. (1Sa 2:22–26) Samúel óx og dafnaði og Jehóva var með honum. (1Sa 3:9) Á gamals aldri var hann enn trúr Jehóva, þótt synir hans væru það ekki. – 1Sa 8:1–5.

Hvað getum við lært af fordæmi Samúels? Ef þú ert ungur að árum skaltu vera fullviss um að Jehóva skilur hvað þú ert að glíma við og hvernig þér líður. Hann getur hjálpað þér að sýna hugrekki. (Jes 41:10, 13) Ef þú ert foreldri barns sem hefur leiðst afvega, geturðu huggað þig við það að Samúel gat ekki þvingað fullorðna syni sína til að vera trúir meginreglum Jehóva. Hann lagði málin í hendur Jehóva og varðveitti eigin ráðvendni og gladdi Jehóva, himneskan föður sinn. Vera má að gott fordæmi þitt fái barnið þitt til að snúa aftur til Jehóva.

HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ LÆRUM AF ÞEIM – SAMÚEL OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:

  • Hvernig sýndi Samúel hugrekki á barnsaldri?

  • Hvað gerði Danny sem sýndi hugrekki hans?

  • Að hvaða leiti var Samúel til fyrirmyndar á gamals aldri?

  • Jehóva styður þá sem taka skýra afstöðu með því sem er rétt.

    Hvernig voru foreldrar Dannys góð fyrirmynd?