FJÁRSJÓÐIR Í ORÐI GUÐS
Þú getur reitt þig á tryggan kærleika Jehóva
Þú ert dýrmætur í augum Jehóva. (Jes 43:4) Hann hefur dregið þig til sín og safnaðar síns. Þú tilheyrir Jehóva vegna þess að þú hefur vígst honum og látið skírast. Hann annast þig og metur þig mikils, einkum þegar á móti blæs. Hann sýnir þér tryggan kærleika fyrir milligöngu safnaðarins. – Sl 25:10.
Við lærum að meta tryggan kærleika Jehóva enn meira þegar við skoðum hvað söfnuður hans hefur gert til að bregðast við náttúruhamförum á undanförnum árum.
HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ SKÝRSLA RITARANEFNDARINNAR 2019 OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:
-
Hvernig hefur ritaranefndin búið deildarskrifstofur um heim allan undir að bregðast við náttúruhamförum?
-
Hvernig veitti söfnuður Jehóva leiðbeiningar og neyðaraðstoð í Indónesíu og Nígeríu?
-
Hvað kannt þú að meta varðandi viðbrögð safnaðarins við COVID-19 heimsfaraldrinum?