Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

Sérstakt boðunarátak í september til að vekja athygli á ríki Guðs

Sérstakt boðunarátak í september til að vekja athygli á ríki Guðs

Við gerum sérstakt átak í september til að benda á að ríki Guðs sé eina lausnin á vandamálum mannkynsins. (Mt 24:14) Hvernig getur þú tekið þátt í boðunarátakinu? Sýndu eins mörgum og mögulegt er í mánuðinum biblíuvers um ríki Guðs. Þegar einhver sýnir áhuga skaltu bjóða eintak af almennu útgáfu Varðturnsins nr. 2 2020. Fylgdu síðan áhuganum eftir eins fljótt og mögulegt er og reyndu að hefja biblíunámskeið í bæklingnum Von um bjarta framtíð. Aðstoðarbrautryðjendur geta valið að nota annað hvort 15 eða 30 klukkustundir í boðuninni í september.

Ríki Guðs molar bráðlega öll ríki sem standa gegn því. (Dan 2:44; 1Kor 15:24, 25) Nýtum okkur þetta einstaka tækifæri til að sýna að við styðjum Jehóva og ríki hans.