29. júlí–4. ágúst
SÁLMUR 69
Söngur 13 og bæn | Inngangsorð (1 mín.)
1. Atburðir í lífi Jesú voru sagðir fyrir í Sálmi 69
(10 mín.)
Jesús var hataður að tilefnislausu. (Sl 69:4; Jóh 15:24, 25; w11 15.8. 11 gr. 17)
Jesús hafði brennandi áhuga á tilbeiðslunni á Jehóva. (Sl 69:9; Jóh 2:13–17; w10 15.12. 8 gr. 7, 8)
Jesús var angistarfullur og honum var boðið vín blandað beiskum jurtum. (Sl 69:20, 21; Mt 27:34; Lúk 22:44; Jóh 19:34: g95-E 22.10. 31 gr. 4; it-2-E 650)
TIL ÍHUGUNAR: Hvers vegna hafði Jehóva spádóma um Messías með í Hebresku ritningunum?
2. Andlegir gimsteinar
(10 mín.)
-
Sl 69:30, 31 – Hvernig geta þessi vers hjálpað okkur að gera bænir okkar innihaldsríkari? (w99 1.3. 27 gr. 11)
-
Hvaða andlegu gimsteinum í biblíulestri vikunnar langar þig til að segja frá?
3. Biblíulestur
(4 mín.) Sl 69:1–25 (th þjálfunarliður 2)
4. Þolinmæði – Hvernig fór Jesús að?
(7 mín.) Ræða með þátttöku áheyrenda. Spilaðu MYNDBANDIÐ og ræddu síðan um lmd kafla 8 liði 1, 2.
5. Þolinmæði – Líkjum eftir Jesú
(8 mín.) Ræða með þátttöku áheyrenda byggð á lmd kafla 8 liðum 3–5 og „Sjá einnig“.
Söngur 134
6. Staðbundnar þarfir
(5 mín.)
7. Góð ráð fyrir tilbeiðslustund fjölskyldunnar
(10 mín.) Ræða með þátttöku áheyrenda.
Í janúar 2009 var safnaðarbóknámið sameinað Boðunarskólanum og þjónustusamkomunni og úr varð ein samkoma sem er haldin í miðri viku. Þetta veitti fjölskyldum eitt kvöld í hverri viku til að hafa sína eigin dagskrá fyrir tilbeiðslustund fjölskyldunnar. Margir hafa látið þakklæti í ljós fyrir þetta fyrirkomulag sem hjálpar þeim að hafa nánara samband við Jehóva og hvert annað. – 5Mó 6:6, 7.
Hvaða ráð geta höfuð fjölskyldunnar nýtt sér til að gera tilbeiðslustund fjölskyldunnar árangursríka?
-
Hafðu fastan tíma. Ef mögulegt er skaltu hafa sama tíma í hverri viku fyrir tilbeiðslustund fjölskyldunnar. Hafðu líka annan tíma til vara ef eitthvað óvænt kemur upp á.
-
Vertu undirbúinn. Leitaðu ráða hjá eiginkonu þinni og biddu börnin um tillögur af og til. Undirbúningurinn þarf ekki að vera ítarlegur, einkum ef fjölskyldunni finnst gott að hafa svipaða dagskrá í hverri viku.
-
Lagaðu dagskrána að þörfum fjölskyldunnar. Þegar börnin eldast breytast þarfir þeirra og geta. Dagskráin ætti að hjálpa hverjum og einum í fjölskyldunni að eignast betra samband við Jehóva.
-
Hafðu andrúmsloftið kærleiksríkt og afslappað. Af og til mætti hafa námsstundina utandyra ef veður leyfir. Hikaðu ekki við að gera hlé eftir þörfum. Enda þótt nauðsynlegt sé að taka á ákveðnum vandamálum sem fjölskyldan er að glíma við ætti ekki að nota tilbeiðslustundina til að skamma eða refsa börnunum.
-
Gerðu ráð fyrir fjölbreytni. Það væri til dæmis hægt að undirbúa ákveðinn dagskrárlið fyrir næstu samkomu, horfa á og ræða um myndband á jw.org eða hafa æfingu fyrir boðunina. Þótt umræður ættu að vera þungamiðja tilbeiðslustundarinnar væri líka hægt að nota hluta tímans fyrir einkanám.
Ræddu um þessa spurningu:
-
Hvernig hefur þér gengið að fara eftir þessum ráðum í tilbeiðslustund fjölskyldunnar?
8. Safnaðarbiblíunám
(30 mín.) bt kafli 13 gr. 8–16, rammi á bls. 105