LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU
Notar þú JW Library-appið?
JW Library er ókeypis app (smáforrit) sem gerir þér kleift að hlaða niður Biblíunni og öðrum ritum, myndskeiðum og hljóðrituðu efni á snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu.
HVERNIG NÁUM VIÐ Í APPIÐ? Farðu á Netið, síðan í app store til að hlaða niður JW Library-appinu. Þetta app er fáanlegt fyrir mismunandi snjalltæki. Á meðan þú ert á Netinu skaltu opna appið og velja það sem þú vilt hlaða niður í tækið þitt. Þeir sem komast ekki á Netið heima geta það kannski í ríkissalnum, á almenningsbókasafni eða nálægu kaffihúsi. Þegar búið er að hlaða niður ritum eða öðru á snjallsíma eða tölvu, þarf ekki nettengingu til að nota efnið. Þar sem nýjungar koma reglulega á JW Library-appið, væri gott að fara öðru hvoru á Netið og uppfæra appið.
HVERS VEGNA AÐ VERÐA SÉR ÚT UM APPIÐ? JW Library-appið auðveldar manni biblíulestur og nám og að fylgjast með á safnaðarsamkomum. Það kemur að góðum notum þegar við boðum trúna, sérstaklega þegar við gerum það óformlega.