FJÁRSJÓÐIR Í ORÐI GUÐS
Hrekið burt alla íbúa landsins
Jehóva fyrirskipaði fólki sínu að eyða öllu í fyrirheitna landinu sem gæti orðið þeim til falls. (4Mó 33:52; w10-E 1.8. 23)
Jehóva lofaði að blessa Ísraelsmenn ef þeir væru staðráðnir í að leggja landið algerlega undir sig. (4Mó 33:53)
Ef þeir sigruðu ekki óvinina algerlega myndu vandamál koma upp. (4Mó 33:55, 56; w08 15.2. 27 gr. 5, 6; it-1-E 404 gr. 2)
Til að Jehóva sé ánægður með okkur verðum við að losa okkur við allt sem spillir siðferði okkar og sambandinu við hann. (Jak 1:21) Jehóva veitir okkur styrk til að takast á við syndugar tilhneigingar og standa gegn slæmum áhrifum þessa heims.