Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

LEGGÐU ÞIG FRAM VIÐ AÐ BOÐA TRÚNA | AUKUM GLEÐINA AF BOÐUNINNI

Notaðu líkingar til að skýra aðalatriðin

Notaðu líkingar til að skýra aðalatriðin

Þegar við förum í endurheimsóknir eða höldum biblíunámskeið þurfum við að hjálpa viðmælendum okkar að skilja aðalatriðin. Þegar við notum líkingar getum við hreyft við tilfinningum fólks sem á þá auðveldara með að muna þessi atriði.

Þegar þú undirbýrð þig fyrir endurheimsókn eða biblíunámskeið skaltu velja aðalatriði, ekki aukaatriði, til að útskýra með líkingu. Veldu síðan einfalda líkingu úr daglega lífinu. (Mt 5:14–16; Mr 2:21; Lúk 14:7–11) Taktu mið af bakgrunni og lífi viðmælanda þíns. (Lúk 5:2–11; Jóh 4:7–15) Það veitir þér gleði að sjá augu hans ljóma þegar hann skilur ákveðið atriði.

HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ UPPLIFÐU GLEÐINA SEM FYLGIR ÞVÍ AÐ GERA FÓLK AÐ LÆRISVEINUM – TAKTU FRAMFÖRUM – NOTAÐU LÍKINGAR TIL AÐ SKÝRA AÐALATRIÐIN OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:

  • Hvers vegna gæti þurft að hjálpa nemendum að skilja biblíuvers?

  • Hvaða líkingu notaði Nína til að útskýra Rómverjabréfið 5:12?

  • Góðar líkingar ná til hjartans

    Hvaða áhrif geta góðar líkingar haft á áheyrendur okkar?

  • Hvers vegna ættum við að nota myndskeið og önnur kennslugögn frá söfnuði Jehóva þegar við boðum trúna?