Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

„Kærleikurinn … vonar allt“

„Kærleikurinn … vonar allt“

Við vonum að trúsystkinum okkar farnist vel vegna þess að við berum óeigingjarnan kærleika til þeirra. (1Kor 13:4, 7) Til dæmis ef trúbróðir okkar drýgir synd og fær aga vonum við að hann taki leiðréttingunni vel. Við sýnum þeim sem eru óstyrkir í trúnni þolinmæði og reynum að hjálpa þeim. (Róm 15:1) Þótt einhver yfirgefi söfnuðinn gefum við ekki upp vonina um að hann snúi aftur einhvern tíma. – Lúk 15:17, 18.

HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ MUNUM HVERNIG KÆRLEIKURINN HEGÐAR SÉR – HANN VONAR ALLT OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:

  • Hvernig breyttist hollusta Abners?

  • Hvernig brugðust Davíð og Jóab við beiðni Abners?

  • Hvers vegna ættum við að vona að trúsystkinum okkar farnist vel?