Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

Verðu þig gegn fráhvarfi

Verðu þig gegn fráhvarfi

Satan og þeir sem eru undir áhrifum hans flétta oft saman lygum og sannleika til að reyna að grafa undan trú okkar. (2Kor 11:3) Til dæmis notuðu Assýringar beinar lygar og annað sem var að hluta til rétt í þeim tilgangi að draga kjark úr fólki Jehóva. (2Kr 32:10–15) Fráhvarfsfólk notar svipaðar aðferðir nú á dögum. Hvernig ættum við að bregðast við fráhvarfskenningum? Við ættum að líta á þær sem algert eitur. Lesum aldrei slíkt efni, svörum því aldrei og höfum það aldrei eftir. Verum snögg að sjá í gegnum upplýsingar sem eiga að vekja efsemdir um Jehóva og söfnuð hans. Höfnum öllu slíku. – Júd 3, 4.

HORFÐU Á MYNDBANDIÐ ‚BERJUMST AF KRAFTI FYRIR TRÚNNI‘ – ÚTDRÁTTUR OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:

  • Hvers vegna er nauðsynlegt að vera á verði ef við notum spjallrásir á netinu?

  • Hvernig getum við farið eftir ráðunum í Rómverjabréfinu 16:17?