Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

Þannig notum við – Hverjir gera vilja Jehóva?

Þannig notum við – Hverjir gera vilja Jehóva?

Bæklingurinn Hverjir gera vilja Jehóva? var hannaður fyrir umræður með biblíunemendum í byrjun eða lok hverrar námsstundar. * Kaflar 1-4 hjálpa biblíunemendum að kynnast því hvers konar fólk við erum, kaflar 5-14 greina frá starfsemi safnaðarins og kaflar 15-28 sýna hvernig heimssöfnuðurinn er skipulagður. Oftast er best að byrja á byrjuninni og taka kaflana í röð nema ákveðinn kafli fjalli um viðfangsefni sem er til sérstakrar umræðu. Hver kafli er ein blaðsíða og í flestum tilfellum er hægt að fjalla um hann á fimm til tíu mínútum.

  • Beindu athygli nemandans að spurningunni sem er kaflaheitið.

  • Lesið kaflann saman, annað hvort allan eða í hlutum.

  • Ræðið það sem þið lásuð. Notaðu spurningarnar neðst á blaðsíðunni og myndirnar. Lestu og ræddu um biblíuversin sem vísað er í eftir því sem við á. Bentu á að feitletruðu millifyrirsagnirnar svara titilspurningunni.

  • Ef ramminn „skoðaðu málið betur“ er í kaflanum skaltu lesa hann með nemandanum og hvetja hann til að fylgja ráðleggingunum sem þar er að finna.

^ gr. 3 Rafræn útgáfa bæklingsins er sú nýjasta.