16.–22. mars
1. MÓSEBÓK 25–26
Söngur 18 og bæn
Inngangsorð (1 mín.)
FJÁRSJÓÐIR Í ORÐI GUÐS
„Esaú selur frumburðarrétt sinn“: (10 mín.)
1Mó 25:27, 28 – Tvíburarnir Esaú og Jakob voru ólíkir í sér og höfðu ólík áhugamál. (it-1-E 1242)
1Mó 25:29, 30 – Esaú var svangur og þreyttur og lét það stjórna gerðum sínum.
1Mó 25:31–34 – Esaú var vanþakklátur og seldi Jakobi frumburðarétt sinn í fljótfærni fyrir máltíð. (w19.02 16 gr. 11; it-1-E 835)
Gröfum eftir andlegum gimsteinum: (10 mín.)
1Mó 25:31–34 – Sumir hafa haldið að þessi frásaga sýni að ættfeður Messíasar hafi þurft að vera frumburðir, en af hverju er sá skilningur ekki réttur? (Heb 12:16; w17.12 14–15)
1Mó 26:7 – Hvers vegna sagði Ísak ekki allan sannleikann við þetta tækifæri? (it-2-E 245 gr. 6)
Hvaða andlegu gimsteinum í biblíulestri vikunnar varðandi Jehóva Guð, boðunina eða annað langar þig til að segja öðrum frá?
Biblíulestur: (4 mín. eða skemur) 1Mó 26:1–18 (th þjálfunarliður 5)
LEGGÐU ÞIG FRAM VIÐ AÐ BOÐA TRÚNA
Fyrsta endurheimsókn – myndskeið: (5 mín.) Ræða með þátttöku áheyrenda. Spilaðu myndskeiðið og spyrðu síðan áheyrendur eftirfarandi spurninga: Hvernig getum við forðast að gera húsráðandann vandræðalegan ef hann veit ekki svarið við spurningu? Hvernig notaði boðberinn Matteus 20:28 á áhrifaríkan hátt þegar hann ræddi við húsráðanda?
Fyrsta endurheimsókn: (4 mín. eða skemur) Notaðu tillöguna að umræðum. (th þjálfunarliður 3)
Fyrsta endurheimsókn: (4 mín. eða skemur) Byrjaðu á að nota tillöguna að umræðum. Bjóddu síðan bókina Hvað kennir Biblían? (th þjálfunarliður 15)
LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU
Sýndu myndskeið þegar þú notar Gleðifréttir frá Guði til að kenna biblíunemendum: (15 mín.) Ræða með þátttöku áheyrenda. Spilaðu myndskeiðin Hvað gerist við dauðann? og Af hverju leyfir Guð þjáningar?. Eftir að hvort myndskeið fyrir sig hefur verið spilað skaltu spyrja eftirfarandi spurninga: Hvernig geturðu notað þetta myndskeið þegar þú ferð yfir bæklinginn Gleðifréttir frá Guði með biblíunemendum? (mwb19.03 7) Hvaða atriði í myndskeiðinu hefur þér fundist gagnleg við kennsluna? Minntu alla á að krækjur á myndskeið er að finna í stafrænni útgáfu bæklingsins Gleðifréttir frá Guði.
Safnaðarbiblíunám: (30 mín.) bh kafli 11 gr. 12–21
Lokaorð (3 mín. eða skemur)
Söngur 135 og bæn