Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

LEGGÐU ÞIG FRAM VIÐ AÐ BOÐA TRÚNA | AUKUM GLEÐINA AF BOÐUNINNI

Notum spurningar

Notum spurningar

Jehóva, „hinn hamingjusami Guð“, vill að okkur finnist gaman að boða trúna. (1Tí 1:11) Boðunin verður skemmtilegri þegar við tökum framförum. Spurningar geta vakið áhuga og eru eðlileg leið til að hefja samræður. Spurningar fá fólk til að hugsa og draga ályktanir. (Mt 22:41–45) Með því að spyrja spurninga og hlusta á svarið sýnum við viðmælandanum að okkur finnist hann mikilvægur. (Jak 1:19) Svörin geta hjálpað okkur að beina samtalinu í rétta átt.

HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ UPPLIFÐU GLEÐINA SEM FYLGIR ÞVÍ AÐ GERA FÓLK AÐ LÆRISVEINUM – TAKTU FRAMFÖRUM – NOTAÐU SPURNINGAR OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:

  • Hvaða góðu eiginleika sýndi Jónína?

  • Hvernig notaði Nína spurningar til að sýna Jónínu persónulegan áhuga?

  • Hvernig notaði Nína spurningar til að hjálpa Jónínu að fá meiri áhuga á fagnaðarboðskapnum?

  • Hvernig notaði Nína spurningar til að hjálpa Jónínu að hugsa og draga ályktanir?