FJÁRSJÓÐIR Í ORÐI GUÐS
Varist stolt og ofmetnað
Kóra gerði uppreisn gegn fyrirkomulagi Jehóva vegna þess að hann varð stoltur og ofmetnaðist. (4Mó 16:1–3; w11 15.9. 27 gr. 12)
Kóra var virtur Levíti og hafði hlotnast sá heiður að sinna mikilvægum verkefnum. (4Mó 16:8–10; w11 15.9. 27 gr. 11)
Þessi rangi hugsunarháttur Kóra hafði skelfilegar afleiðingar. (4Mó 16:32, 35)
Við megum ekki láta það sem við höfum áorkað í þjónustu Jehóva fá okkur til að verða stolt og ofmetnast. Ef við höfum verið lengi í sannleikanum eða haft mikla ábyrgð höfum við þeim mun meiri ástæðu til að sýna auðmýkt.