Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

Þrjár leiðir til að reiða sig á Jehóva

Þrjár leiðir til að reiða sig á Jehóva

Davíð sigraði Golíat vegna þess að hann treysti Jehóva. (1Sa 17:45) Jehóva vill sýna mátt sinn og koma öllum þjónum sínum til hjálpar. (2Kr 16:9) Hvernig getum við reitt okkur á stuðning Jehóva í stað þess að treysta á eigin reynslu og hæfileika? Hér eru þrjár leiðir:

  • Biðjum oft. Biðjum ekki bara um fyrirgefningu þegar okkur hefur orðið á, biðjum líka um styrk þegar við stöndum frammi fyrir freistingum. (Mt 6:12, 13) Biðjum Jehóva ekki bara að blessa ákvarðanir sem hafa þegar verið teknar, biðjum hann líka um leiðsögn og visku áður en ákvarðanir eru teknar. – Jak 1:5.

  • Höfum fyrir venju að lesa í Biblíunni og hugleiða efnið gaumgæfilega. Lesum í Biblíunni á hverjum degi. (Sl 1:2) Veltum frásögum Biblíunnar fyrir okkur og förum eftir því sem við lærum. (Jak 1:23–25) Undirbúum okkur fyrir boðunina í stað þess að styðjast bara við það sem við erum vön að segja. Höfum fullt gagn af safnaðarsamkomum með því að kynna okkur efnið fyrirfram.

  • Vinnum með söfnuði Jehóva. Fylgjumst vel með nýjustu leiðbeiningunum frá söfnuðinum og förum strax eftir þeim. (4Mó 9:17) Hlustum á öldunganna þegar þeir gefa fyrirmæli og leiðbeiningar. – Heb 13:17.

HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ ENGIN ÁSTÆÐA TIL AÐ ÓTTAST OFSÓKNIR OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:

• Hvað óttuðust trúsystkini okkar?

• Hvað hjálpaði þeim að takast á við óttann?