LEGGÐU ÞIG FRAM VIÐ AÐ BOÐA TRÚNA | AUKUM GLEÐINA AF BOÐUNINNI
Hjálpaðu biblíunemendum að losa sig við óhreina ávana
Þeir einir geta átt gott samband við Jehóva sem eru siðferðilega hreinir. (1Pé 1:14–16) Þegar biblíunemendur sigrast á slæmum ávönum getur það haft góð áhrif á fjölskyldu þeirra, heilsu og fjármál.
Útskýrðu vel siðferðiskröfur Jehóva, ástæðurnar fyrir þeim og hvers vegna það er okkur fyrir bestu að uppfylla þær. Einbeittu þér að því að hjálpa nemendum að breyta hugsanahætti sínum, þá breyta þeir líferni sínu í framhaldinu. (Ef 4:22–24) Fullvissaðu þá um að þeir geti með hjálp Jehóva losað sig við rótgróna, slæma ávana. (Fil 4:13) Kenndu þeim að biðja innilega til Jehóva þegar þeir finna fyrir freistingunni að syndga. Hjálpaðu þeim að gera sér grein fyrir hvaða aðstæður þeir þurfa að forðast. Hvettu þá til að skipta út slæmum venjum fyrir heilnæmar venjur. Það er ánægjulegt að sjá þegar biblíunemendum tekst að gera breytingar með hjálp Jehóva.
HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ HJÁLPAÐU BIBLÍUNEMENDUM ÞÍNUM AÐ … LOSA SIG VIÐ ÓHREINA ÁVANA OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:
-
Hvernig sýndu öldungarnir og Nína að þau báru traust til Jónínu?
-
Hvernig veitti Nína Jónínu frekari aðstoð?
-
Hvernig leitaði Jónína eftir stuðningi Jehóva?