Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

Hverjir eru vinir þínir á netinu?

Hverjir eru vinir þínir á netinu?

Vinur er kær félagi sem hefur áunnið sér virðingu eða væntumþykju. Jónatan og Davíð tengdust órjúfanlegum vináttuböndum eftir að Davíð drap Golíat. (1Sa 18:1) Þeir mátu mikils eiginleika hvors annars. Sterk vinátta byggist nefnilega á nákvæmri þekkingu. Það tekur yfirleitt tíma og fyrirhöfn að kynnast öðrum. En á samskiptasíðum getur fólk eignast „vini“ með einum músarsmelli. Þar sem fólk getur undirbúið nákvæmlega hvað það ætlar að segja á netinu getur það stýrt að vissu marki áliti annarra og falið auðveldlega hvers konar persónu það hefur sjálft að geyma. Þar af leiðandi er gott að setja sér reglur um hverja maður vill hafa fyrir vini á netinu. Ekki hika við að hafna eða svara ekki vinarbeiðni frá fólki sem þú þekkir eiginlega ekkert, af ótta við að særa það. Miðað við hugsanlegar hættur hafa sumir ákveðið að nota ekkert samskiptasíður. En ef þú ákveður að nota samskiptasíðu, hvað ættirðu þá að hafa í huga?

HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ SKYNSEMI Á SAMSKIPTASÍÐUM OG SVARAÐU EFIRFARANDI SPURNINGUM:

  • Hvað ættirðu að hafa í huga áður en þú birtir athugasemdir eða myndir?

  • Hvers vegna ættirðu að velja vini vandlega á netinu?

  • Hvers vegna ættirðu að takmarka þann tíma sem þú notar á samskiptasíðum? – Ef 5:15, 16.