LEGGÐU ÞIG FRAM VIÐ AÐ BOÐA TRÚNA
Hvernig á að nota myndböndin um biblíunámskeið?
Við höfum fjögur myndbönd um biblíunámskeið til að nota í boðuninni. Hvernig er ætlast til að við notum þau?
-
Hvers vegna ættum við að kynna okkur Biblíuna? – lengri útgáfa. Við getum notað þetta myndband til að vekja áhuga fólks á Biblíunni óháð trúarskoðun þess. Í myndbandinu eru áhorfendur hvattir til að kynna sér svör Biblíunnar við stóru spurningum lífsins og þeir sjá líka dæmi um hvað rök hennar eru góð. Það er líka útskýrt hvernig hægt er að óska eftir biblíunámskeiði.
-
Hvers vegna ættum við að kynna okkur Biblíuna? – styttri útgáfa. Þetta myndband er svipað lengri útgáfunni, en bara þriðjungur að lengd og getur verið áhrifaríkara á starfssvæðum þar sem fólk hefur lítinn tíma til að ræða málin.
-
Hvernig fer biblíunámskeið fram? Við getum notað þetta myndband til að vekja áhuga á ókeypis biblíunámskeiði okkar og svara algengum spurningum eins og hvernig óskað er eftir biblíunámskeiði.
-
Velkominn á biblíunámskeiðið. Það er gott að sýna biblíunemendum þetta myndband. Þótt myndbandið sé kynnt á blaðsíðu tvö í bókinni Von um bjarta framtíð má sýna það þegar farið er yfir bæklinginn Von um bjarta framtíð. Í myndbandinu er stutt yfirlit yfir efni bókarinnar og útskýrt fyrir nemandanum hvernig umræðurnar fara fram.
Þótt öll myndböndin séu gerð með ákveðið markmið í huga má sýna eða senda fólki það myndband sem hentar best hverju sinni. Boðberar eru hvattir til að kynna sér efni þeirra vel til að geta notað þau í boðuninni.