LEGGÐU ÞIG FRAM VIÐ AÐ BOÐA TRÚNA
Ákvarðanir sem sýna að við reiðum okkur á Jehóva
Við þurfum að taka margar ákvarðanir á hverjum einasta degi. Fólk lætur oft tilfinningar ráða þegar það tekur ákvarðanir eða fylgir bara fjöldanum. (2Mó 23:2; Okv 28:26) En þeir sem reiða sig á Jehóva hafa „hann alltaf með í ráðum“ og taka ákvarðanir í samræmi við meginreglur Biblíunnar. – Okv 3:5, 6.
Skrifaðu fyrir neðan hvert biblíuvers við hvaða aðstæður það gæti hjálpað þér að taka góða ákvörðun.
HORFÐU Á MYNDBANDIÐ LÍKJUM EFTIR ÞEIM SEM TRÚA EN EKKI ÞEIM SEM SKORTIR TRÚ – MÓSE EN EKKI FARAÓ OG SVARAÐU EFTIRFARANDI SPURNINGU:
Hvernig hjálpaði fordæmi úr Biblíunni bróðurnum að taka góða ákvörðun?