Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

Svona notum við bókina – What Can the Bible Teach Us?

Svona notum við bókina – What Can the Bible Teach Us?

Bókin What can the Bible teach us? (Hvað kennir Biblían okkur? – ekki til á íslensku) er svipuð bókinni Hvað kennir Biblían? Báðar þessar kennslubækur kynna sömu sannindin í sömu röð. En orðalagið og rökfærslan er einfaldari í bókinni What can the Bible teach us? Bókin er hugsuð fyrir þá sem gætu átt erfitt með að skilja bókina Hvað kennir Biblían? og í staðinn fyrir viðauka eru aftanmálsgreinar sem útskýra á einfaldan hátt sum orð og hugtök í meginmálinu. Kaflarnir byrja ekki á spurningum og enda ekki á yfirliti. Þess í stað lýkur hverjum kafla á samantekt á biblíusannindum sem fjallað er um í meginmálinu. Það má bjóða What Can the Bible Teach Us? hvenær sem er, alveg eins og bókina Hvað kennir Biblían?, þótt hún sé ekki tilboð mánaðarins. Hvernig getum við nýtt okkur kosti bókarinnar What Can the Bible Teach Us? þegar við höldum biblíunámskeið?

SAMANTEKT: Hefðbundna aðferðin okkar, að lesa greinina í bókinni Hvað kennir Biblían? og spyrja síðan spurningarinnar hentar flestum biblíunemendum ágætlega. En segjum sem svo að nemandinn sé ekki góður í tungumálinu eða lestri. Þá gæti verið gott að nota bókina What can the Bible teach us? Nota má samantektina úr kaflanum sem grunn fyrir námstundina og hvetja nemandann síðan til að lesa sjálfur meginmálið. Oft má kenna biblíusannindi hvers kafla í einni námsstund sem tekur um 15 mínútur. Þar sem samantektin inniheldur ekki allar upplýsingarnar í meginmálinu þarf kennarinn að undirbúa sig vel og hafa þarfir nemandans í huga. Ef kennarinn notar meginmálið við kennsluna getur hann notað samantektina til að rifja efnið upp.

AFTANMÁLSGREINAR: Hugtök og efni í aftanmálsgreinunum eru í sömu röð og í meginmálinu. Kennarinn getur ákveðið hvort hann ræðir um aftanmálsgreinarnar í bókinni What can the Bible teach us? í námsstundinni.